FME birtir gagnsæistilkynningu
12. janúar 2024
![FME birtir gagnsæistilkynningu](https://test.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/Sedlabanki-fjarmalaeftirlit-657x414.jpg)
Vegna mistaka fór vægi ríkisskuldabréfasjóðs 0,3 prósentustig yfir leyfilegt hlutfall af eignum Húsnæðissafns í júlí 2023. Mistökin uppgötvuðust í ágúst og voru strax gerðar eignabreytingar auk þess sem frávikið var tilkynnt til FME. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur þegar gripið til ráðstafana sem eiga að draga úr líkum á að mistök af þessu tagi endurtaki sig.