Iðgjaldaskil
Launagreiðendur geta skilað iðgjöldum á nokkra vegu til sjóðsins.
- Við mælum með því að launagreiðendur nýti sér rafræn skil, annað hvort með því að senda skilagreinar beint úr launakerfinu eða með því að skrá skilagreinar í gegnum launagreiðendavefinn.
- Með því að skila á rafrænan hátt beint úr launakerfinu eykst öryggi í gagnasendingum og villuhætta minnkar.
- Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir lágmarksiðgjöld er L005.
- Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir viðbótariðgjöld X004.
- Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir iðgjöld í endurhæfingarsjóð er R005
Skil úr launakerfi
- Einfaldast er að senda skilagreinaskrá rafrænt til sjóðsins beint í gegnum launakerfið (XML-skil). Ef launagreiðendur óska eftir því að greiðsluseðill myndist í heimabanka þarf að hafa samband við sjóðinn og óska eftir því. Ekki þarf lykilorð til að senda Almenna XML-skilagrein, ef launakerfi óska eftir lykilorði verður launafulltrúi að búa það til.
- Í flestum launaforritum er verkliður sem útbýr skilagreinaskrá (TXT-skrá) sem hægt er að senda með tölvupósti til sjóðsins á netfangið skilagreinar@almenni.is
Launagreiðendavefur
Á launagreiðendavef geta launagreiðendur sótt upplýsingar um iðgjaldagreiðslur til sjóðsins og skráð skilagreinar.
- Launagreiðendavefur er góð leið til að skrá og senda skilagreinar til sjóðsins. Til stytta sér leið er hægt að yfirskrifa eldri skilagrein og breyta fjárhæðum og tímabili.
- Innskráning á vefinn er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
- Á launagreiðendavefnum eru upplýsingar um greiðslustöðu launagreiðanda á hverjum tíma.
- Launagreiðendur geta sótt yfirlit um iðgjaldagreiðslur fyrir valið greiðslu- og launatímabil.
Smelltu hér til opna launagreiðendavef
Rafrænar skilagreinar
Hægt er að fylla út rafræna skilagrein á opna vefnum okkar með því að smella hér.
Launagreiðendur geta einnig sent útfylltar skilagreinar með tölvupósti á netfangið skilagreinar@almenni.is,
með faxi í númer 510 2550 eða í bréfapósti til Almenni lífeyrissjóðurinn, Dalvegi 30, 201 Kópavogi.
Greiðsluupplýsingar
Upplýsingar vegna greiðslu iðgjalda til Almenna lífeyrissjóðsins:
- Greiða kröfu sem myndast í netbanka.
- Greiða beint inn á bankareikning sjóðsins, 513-26-410000, kt. 450290-2549.