Getum við aðstoðað?

Galið að vera ekki með…

03. október 2024

Galið að vera ekki með…

Viðbótarlífeyrissparnaður í 25 ár

Þriðjudaginn 8. október heldur Almenni lífeyrissjóðurinn morgunfund  í tilefni þess að á þessu ári eru liðin 25 ár síðan viðbótarlífeyrissparnaður hófst. Fundurinn verður haldinn  í Vox Club salnum á Hilton Reykjavik Nordica. Fundurinn stendur frá kl. 8:30 til 9:30 en þar flytja Már Wolfgang Mixa dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Kristjana Sigurðardóttir fjárfestingastjóri Almenna og Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna erindi.

Fjallað verður vítt og breitt um viðbótarlífeyrissparnað, um sögu hans og þróun, af hverju hann er mikilvægur og hagstæður, hvernig best er að ávaxta hann og hver ávöxtunin hefur verið. Að loknum erindunum sitja fyrirlesarar fyrir svörum í pallborði. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Fundarstjóri á fundinum verður Sveinn Melsted, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins.

 

Efni: Galið að vera ekki með… – Viðbótarlífeyrissparnaður í 25 ár
Staður: Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica, jarðhæð, Suðurlandsbraut.
Dagsetning og tími: 8. október 2024, kl. 8:30 – 9:30

Streymt verður frá fundinum hér fyrir neðan og á www.vb.is