Vextir
Umsækjendur geta sótt um verðtryggð og óverðtryggð lán
Í boði eru verðtryggð og óverðtryggð lán með vöxtum sem festir eru til 36 mánaða en taka eftir það breytilega vexti, nema lántaki velji að festa vexti aftur.
Það athugast að verðtryggðir breytilegir vextir eru með 0,75% lágmarksvöxtum. Óverðtryggðir breytilegir vextir eru með 3,25% lágmarksvöxtum.
Einnig eru í boði verðtryggðir fastir vextir út lánstíma.
Lánstími lána er sveigjanlegur, frá 5 árum til allt að 40 ára og enginn kostnaður er greiddur við innborgun eða uppgreiðslu lána.
Vextir viðbótarlána eru 0,75 prósentustigum hærri en þau vaxtakjör sem eru í boði.
-
9,45%
Óverðtryggðir vextir fastir í 36 mánuði
-
4,3%
Verðtryggðir fastir vextir út lánstímann
-
4,3%
Verðtryggðir vextir, fastir í 36 mánuði
-
3,84%
Breytilegir verðtryggðir vextir (eldri lán)
Lánskjör
Mikilvægt er að þekkja kostnaðinn af því að taka lán
- Sá sem tekur lán greiðir kostnað í upphafi sem er lántökugjald og annan kostnað við að sækja um og útbúa lánið.
- Á lánstíma greiða lántakendur lánveitanda umsamda vexti fyrir féð sem þeir fá að láni og færslukostnað við hverja afborgun.
- Þeir sem hyggjast taka lán eru hvattir til að kynna sér lánskostnað áður en lán er tekið. Á reiknivél fyrir lán er hægt að gera greiðsluáætlun og reikna árlega hlutfallstölu kostnaðar sem mælir heildarkostnað lána, þ.e. bæði vexti og annan kostnað svo sem lántökugjöld, kostnað við greiðslu afborgana, o.fl. Árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknuð út sem prósentutala og sýnir heildarkostnað á ári við að taka lán.
Gjaldskrá
Gjaldskrá vegna lánaumsýslu og skjalagerðar
Skjalagerð og önnur gjöld:
Skjalagerð: | |
Veðflutningur | 10.000 kr. |
Veðleyfi | 10.000 kr. |
Skilyrt veðleyfi | 10.000 kr. |
Veðbandslausn | 10.000 kr. |
Skuldbreyting | 10.000 kr. |
Skilmálabreytingar | 10.000 kr. |
Skuldskeyting (skuldaraskipti) | 10.000 kr. |
Önnur skjalagerð, hvert skjal | 4.900 kr. |
Umsjón með þinglýsingu | 1.000 kr. |
Gagnaöflun: |
|
Útvegun á rafrænu veðbandayfirliti * | 1.400 kr. |
Útvegun veðbókarvottorðs | 2.750 kr. |
Útvegun lánshæfismats* | 1.300 kr. |
Útvegun skuldastöðuyfirlits* | 1.200 kr. |
Rafrænt greiðslumat, einn aðili (Greiðist beint til Creditinfo) | 8.400 kr. |
Rafrænt greiðslumat, tveir aðilar (Greiðist beint til Creditinfo) | 16.700 kr. |
Greiðslumat, einn aðili* | 11.500 kr. |
Greiðslumat, tveir aðilar* | 20.000 kr. |
Enduropnun greiðslumats | 3.900 kr. |
Fastur kostnaður við lántöku |
|
Lántökugjald | 65.000 kr. |
Skjalagerð ef skuldabréf er umfram eitt | 8.000 kr. |
Tilkynninga og greiðslugjald: | |
Tilkynningar – og greiðslugjald (án seðils – í heimabanka) | 180 kr. |
Tilkynningar- og greiðslugjald (hver seðill – pappírsyfirlit) | 300 kr. |
Vanskilakostnaður | |
Innheimtuviðvörun | 500 kr |
Milliinnheimta | 1.000 kr. |
Lokaviðvörun | 1.000 kr. |
Löginnheimta, skv. gjaldskrá lögmannsstofu |
* Innifalið í kostnaði er að sækja gögn til Creditinfo
Þessi gjaldskrá gildir frá 25. janúar 2023
Innheimta skuldabréfa
Fyrir hvern gjalddaga eru sendar tilkynningar um greiðslu afborgana skuldabréfa. Dráttarvextir reiknast frá fyrsta degi eftir gjalddaga.
Ef vanskil verða á afborgun lána sendir innheimtubanki út eftirtalin bréf með tilheyrandi kostnaði.
20 daga vanskil Áminning
40 daga vanskil Innheimtubréf (milliinnheimta)
80 daga vanskil Lokaaðvörun, gefinn 10 daga greiðslufrestur
Kostnaður við innheimtu má sjá í gjaldskrá ofar á þessari síðu.
Lögfræðiinnheimta:
Greiðsluáskorun Gefinn 30 daga greiðslufrestur
120 daga vanskil Nauðungarsölubeiðni send sýslumanni.
Kostnaður skv. taxta lögmanna og gjaldskrá opinberra gjalda.
Athugið að alltaf er hægt að semja um afborganir áður en kemur til lögfræðiinnheimtu og forðast þannig verulegan kostnað og óþægindi.