Ársfundur 2020
14. maí 2020
Verður haldinn 4. júní
Í framhaldi af tilslökunum á samkomubanni hefur verið ákveðið að ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verði haldinn 4. júní næstkomandi kl. 17:15 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Dagskrá.
- Skýrsla stjórnar.
- Ársskýrsla 2019 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
- Kynning á fjárfestingarstefnu.
- Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.
- Kosning stjórnar. Smelltu hér til að sjá kynningu á frambjóðendum.
- Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um laun stjórnar.
- Önnur mál.
Stjórnarkjör
Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Á ársfundi sjóðsins lýkur kjörtímabili Ólafs H. Jónssonar og Sigríðar Magnúsdóttur, aðalmanna, og Helgu Jónsdóttur, varamanns. Í aðalstjórn skal kjósa eina konu og einn karl til þriggja ára en í varastjórn skal kjósa eina konu til þriggja ára.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal skila framboðum til aðalstjórnar ekki síðar en viku fyrir ársfundinn, í síðasta lagi fyrir kl. 24:00 fimmtudaginn 28. maí 2020. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is. Varamenn eru kosnir í sérstakri kosningu þegar kjör aðalstjórnarmanna hefur farið fram.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Hægt verður að horfa á útsendingu frá ársfundinum hér: