Rafrænt aðgengi – gömul lykilorð óvirk
16. október 2013
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur tekið upp rafræna úthlutun aðgangsorða að sjóðfélagavef með upplýsingum um inneign og lífeyrisréttindi. Á sama tíma hafa eldri lykilorð á sama tíma verið gerð óvirk. Nýja fyrirkomulagið virkar þannig að þeir sem sækja um aðgang fá sent lykilorð í heimabanka sinn. Þeir sem ekki eru með heimabanka þurfa eftir sem áður að sækja um nýtt lykilorð og fá það þá sent á skráð lögheimili. Smelltu hér til að sækja um nýtt lykilorð.