Ávöxtun 2018 og horfur í byrjun árs
24. janúar 2019
Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum á morgunfund þar farið verður yfir ávöxtun ársins 2018 og rætt um horfur á mörkuðum í ársbyrjun 2019.
Dagskrá:
Skin og skúrir, hressileg demba í lok árs
Helga Indriðadóttir, sjóðstjóri, fer yfir ávöxtun eignasafna og markaða á árinu 2018.
Skyggni ágætt, eða hvað?
Grétar Már Axelsson, sjóðstjóri, fer yfir stöðu í alþjóðlegum efnahagsmálum og ræðir um horfur í byrjun árs.
Hvar: Borgartún 25, 8. hæð.
Hvenær: Miðvikudagurinn 30. janúar 2019 kl. 8:30-9:15
Hvað: Upplýsingar, fróðleikur, umræður, kaffi og veitingar
Smelltu hér til að boða komu þína