Óverðtryggðir vextir lækka
26. febrúar 2016
Tekin var ákvörðun um að lækka vexti óverðtryggðra lána á fundi stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins á miðvikudag 24. febrúar síðastliðinn úr 7,0% í 6,75% í samræmi við þróun hjá bönkum og lífeyrissjóðum. Miklar annir hafa verið hjá sjóðnum undanfarið við að afgreiða lán of svara fyrirspurnum.