Hagfellt ár að baki
17. janúar 2018
Árið 2017 var hagfellt þegar horft er til ávöxtunar safna, bæði á innlendum og erlendum markaði. Sá eignaflokkur sem hækkaði mest á síðasta ári voru erlend hlutabréf. Heimsvísitala hlutabréfa MSCI hækkaði yfir árið um 22,4% í USD en vegna styrkingar íslensku krónunnar gagnvart USD þá hækkaði hún um 13,3% í krónum. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa lækkaði verulega á árinu með tilheyrandi gengishagnaði og hækkaði vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf um 12,3%. Innlend hlutabréf hækkuðu skarpt í upphafi árs en sú hækkun gekk að hluta til baka þegar líða tók á árið. Heildarvísitala aðallista hækkaði um 6,2% yfir árið.
Töluverðar sveiflur voru í ávöxtun blandaðra safna Almenna innan ársins en yfir árið í heild skiluðu söfnin góðri raunávöxtun og skiluðu fjögur söfn yfir 7% raunávöxtun. Verðbólga hefur haldist lág undanfarin ár og hækkaði vísitala neysluverðs um 1,7% árið 2017.
- Hæst var ávöxtunin í Ríkissafni löngu sem hækkaði um 9,8%
- Blönduð söfn, sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 5,2% til 9,7%
- Húsnæðissafn hækkaði um 5,3%
- Ríkissafn stutt hækkaði um 5,0%
- Innlánasafn hækkaði um 3,7%
Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:
Blönduð söfn | Blandaðar ávöxtunarleiðir, þ.e. Ævisafn I, II, III og samtryggingarsjóður hækkuðu um 7,0% til 9,7%. Hækkun á erlendum hlutabréfum og lækkun ávöxtunarkröfu á löngum verðtryggðum skuldabréfum vóg þyngst í hækkun safnanna á árinu. Raunávöxtun blandaðra safna var á bilinu 5,2% til 7,8%. |
Ríkissafn langt | Ríkissafn langt hækkaði um 9,8% sem samsvarar 7,9% raunávöxtun. Ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa lækkaði verulega á markaði með tilheyrandi gengishagnaði sem skýrir góða ávöxtun safnsins. |
Ríkissafn stutt | Ríkissafn stutt hækkaði um 5,0% sem samsvarar 3,2% raunávöxtun. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins. |
Innlánasafn | Innlánasafnið hækkaði um 3,7% sem samsvarar 1,9% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 94% af eignum safnsins. |
Húsnæðissafn | Húsnæðissafnið hækkaði um 5,3% sem samsvarar 3,5% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum. |
Góð eignadreifing
Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem m.a. má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin.