Góð raunávöxtun á árinu 2015
20. janúar 2016
Á árinu 2015 var góð ávöxtun í öllum söfnum Almenna lífeyrissjóðsins. Töluverðar sveiflur voru á erlendum mörkuðum á síðastliðnu ári og nokkurs óróleika gætti á þeim undir lok árs sem enn sér ekki fyrir endann á.
- Hæsta ávöxtunin var í samtryggingarsjóði sem hækkaði um 8,6% sem samsvarar 6,5% raunávöxtun.
- Blönduð söfn, sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 6,8%-8,6% á árinu 2015.
- Ríkissafn langt hækkaði um 7,7% sem samsvarar 5,6% raunávöxtun.
- Allar ávöxtunarleiðir hækkuðu á árinu og skiluðu raunávöxtun.
- Raunávöxtun hefur verið góð undanfarin ár og síðastliðin fimm ár hefur hún verið 4,2% til 7,0% á ári í blönduðum söfnum.
Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:
Blönduð söfn hækkuðu mest | Blandaðar ávöxtunarleiðir, þ.e. Ævisafn I, II, III og samtryggingarsjóður hækkuðu á árinu um 6,8% til 8,6%. Lækkun ávöxtunarkröfu á löngum verðtryggðum skuldabréfum vóg þyngst í hækkun safnanna á árinu. Raunávöxtun blandaðra safna var á bilinu 4,7% – 6,5% |
Ríkissafn-langt hækkaði | Ríkissafn-langt hækkaði um 7,7% á árinu sem er hæsta ávöxtun safnsins síðan 2011. Ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa lækkaði verulega með tilheyrandi gengishagnaði sem skýrir góða ávöxtun. |
Ríkissafn-stutt hækkaði | Ríkissafn-stutt hækkaði um 4,9% á árinu sem samsvarar 2,8% raunávöxtun. Ávöxtun safnsins skýrist af lækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa og lágri verðbólgu. |
Verðtryggð innlán hækkuðu | Innlánasafnið hækkaði um 4,0% á árinu sem samsvarar 2,0% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vógu verðtryggð innlán um 93% af eignum í árslok. |
Góð eignadreifing
Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Þrátt fyrir gjaldeyrishöft á liðnum árum eru eignir ævisafna og samtryggingarsjóðs vel dreifðar á útgefendur, atvinnugreinar og lönd. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem m.a. má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin.