Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 15. mars
14. mars 2018
![Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 15. mars](https://test.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/Almenni-skilti-e1644226486926-657x414.jpg)
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars næstkomandi, sjá nánar hér.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal skila framboðum til aðalstjórnar ekki síðar en viku fyrr eða nánar tiltekið kl. 24:00 fimmtudaginn 15. mars 2018. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Á ársfundi sjóðsins lýkur kjörtímabili Ástríðar Jóhannesdóttur og Huldu Rósar Rúriksdóttur og því skal kjósa tvær konur í aðalstjórn. Að auki skal kjósa einn varastjórnarmann sem má vera af hvoru kyni þar sem fyrir eru varastjórnarmenn af sitt hvoru kyni