Framboð til stjórnar
03. apríl 2013
Fimm framboð bárust í tvö laus sæti í aðalstjórn Almenna lífeyrissjóðsins en framboðsfrestur rann út 16. apríl. Stjórnarmeðlimir verða kosnir til þriggja ára á ársfundi sjóðsins þriðjudaginn 23. apríl.
Eftirtaldir gefa kost á sér í aðalstjórn:
Gunnar Einarsson, fjármálastjóri og hugbúnaðarsérfræðingur
Oddur Ingimarsson, læknir og viðskiptafræðingur
Ólafur H. Jónsson, tæknifræðingur, rekstrar- og viðskiptanám frá Endurmenntunarstofnun HÍ
Ragnar Torfi Geirsson, deildarstjóri og kerfisfræðingur
Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, viðskiptafræðingur
Á ársfundinum skal kjósa einn varamann í stjórn til þriggja ára og verður varamaður kosinn í sérstakri kosningu þegar kjör aðalstjórnarmanna hefur farið fram. Framboð til varastjórnar eru tilkynnt á ársfundinum.
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2013 verður haldinn þriðjudaginn 23. apríl á Grand Hótel Reykjavík og hefst kl. 17:15. Hér má lesa ársskýrslu sjóðsins sem verður lögð fram á fundinum.