Nú skiptir meira máli en áður að sjóðfélagar skrái netföng til að tryggja að áríðandi upplýsingar komist til skila. Sjóðurinn stólar ekki lengur á bréfpóst til upplýsingamiðlunar.
Auk áríðandi skilaboða sendir sjóðurinn af og til hagnýtar upplýsingar um lífeyrismál í tölvupósti.
Í stað yfirlita nýtir sjóðurinn sjóðfélagavef þar sem er að finna uppfærðar upplýsingar um réttindi og séreign. Þar er einnig hægt að gera áætlanir um eftirlaun og sparnað, breyta ávöxtunarleið og sækja um alla þjónustu.
Þú getur alltaf skráð þig af póstlistanum með því að smella á “Afskrá” neðst í tölvupóstinum eða haft
samband á netfangið almenni@almenni.is. Við munum umgangast
upplýsingarnar þínar af virðingu og sendum aðeins póst þegar tilefni er til.
Þegar stigin eru fyrstu skrefin út á vinnumarkaðinum þarf meðal annars að huga að lífeyrismálum. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur tekið saman nokkur mikilvæg atriði varðandi lífeyrismál á sérstaka síðu. Einnig má smella hér til að skoða myndband.