Breytingar á sköttum
02. janúar 2014
Frá 1. janúar 2014 taka eftirfarandi skattþrep og skattprósentur gildi samkvæmt vef ríkisskattstjóra.
Skattþrep | Viðmiðunartekjur á mánuði | Staðgreiðsluprósenta |
1. þrep | 0 – 290.000 krónur | 37,30% |
2. þrep | 290.001 – 784.619 krónur | 39,74% |
3. þrep | Yfir 784.619 krónur | 46,24% |
Persónuafsláttur verður 50.498 krónur á mánuði og eru skattleysismörk á mánuði því 135.383 krónur.
Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.
- Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
- Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 37,30% skattur af fyrstu 290.000 krónum, 39,74% skattur af næstu 494.619 krónum og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram kr. 784.619 krónum.
- Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í ágúst árið eftir.
Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. ágúst ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.
Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is