Almenni tilnefndur til verðlauna
21. júní 2013
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur verið tilnefndur til European Pensions lífeyrisverðlaunanna árið 2013 fyrir upplýsingamiðlun til sjóðfélaga.
European Pensions er tímarit um lífeyrismál í Evrópu sem kemur út sex sinnum á ári en stendur jafnframt árlega fyrir European Pensions Awards þar sem þeim sem taldir eru skara fram úr á sviði lífeyrisþjónustu eru veitt verðlaun.
Alls eru veitt verðlaun í 25 flokkum fjárfestinga, lífeyrissöfnunar, ávöxtunar og ráðgjafar. Almenni er tilnefndur ásamt 8 öðrum fyrir bestu upplýsingagjöfina en sjóðurinn hefur frá upphafi lagt áherslu á þann hluta þjónustunnar. Það er mikill heiður að upplýsingamiðlun Almenna lífeyrissjóðsins standist samanburð við það besta sem gerist í Evrópu en á meðal tilnefndra í þessum flokki eru fjölþjóðleg og margverðlaunuð fyrirtæki svo sem Aon Hewitt, Close Brothers og AHC svo einhverjir séu nefndir
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á upplýsingamiðlun til sjóðfélaga.
- Árið 1998 hóf sjóðurinn að birta daglega gengi ávöxtunarleiða og opnaði sjóðfélagavef þar sem sjóðfélagar geta fylgst daglega með stöðu eigin lífeyrissöfnunar og ávöxtunar.
- Á sjóðfélagavefnum geta sjóðfélagar:
- Gert áætlun og fylgst með hvernig gengur að byggja upp eftirlaunasjóð til að greiða eftirlaun.
- Breytt um eignasamsetningu og ávöxtunarleið hvenær sem þeir vilja.
- Séð upplýsingar um áfallalífeyri sem sjóðurinn greiðir þeim ef sjóðfélagar verða óvinnufærir vegna veikinda eða slysa.
- Á heimasíðu sjóðsins eru upplýsingablöð fyrir hverja ávöxtunarleið uppfærð mánaðarlega en þar er að finna nákvæmar upplýsingar um stöðu, gengi og horfur hjá hverri ávöxtunarleið.
- Á www.almenni.is er einnig fræðsluvefur þar sem er að finna fjölda fræðslugreina um hina margvíslegu fleti lífeyrismála.
- Flaggskipið í þjónustu Almenna lífeyrissjóðsins eru svokallaðir stöðufundir en það eru einstaklingsfundir sjóðfélaga með ráðgjafa þar sem farið er yfir lífeyrisréttindi , stöðu og horfur í lífeyrismálum viðkomandi. Fundirnir eru að kostnaðarlausu og án skuldbindinga og hafa hlotið mikið lof hjá þeim sem reynt hafa.
Það kemur svo í ljós þann 26. júní nk. hver hlýtur verðlaunin en verðlaunaathöfnin verður haldin í London þar sem útgáfufyrirtæki European Pensions er með höfuðstöðvar.
Sjá nánar á heimasíðu verðlaunanna: