Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 16. mars
10. mars 2017
![Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 16. mars](https://test.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/Almenni-skilti-e1644226486926-657x414.jpg)
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 23. mars næstkomandi, sjá nánar hér.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal skila framboðum til aðalstjórnar ekki síðar en viku fyrr eða nánar tiltekið kl. 24:00 fimmtudaginn 16. mars. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Kjörtímabili stjórnarmanna Ólafs Jónssonar og Sigríðar Sigurðardóttur rennur út í ár og því skal kjósa aðalstjórnarmenn af sitt hvoru kyninu. Að auki skal kjósa eina konu í varastjórn þar sem tveir karlar eru fyrir í varastjórn.