Iðgjald og réttindi
Samsetning lífeyrisréttinda í Almenna er öðruvísi en í flestum öðrum lífeyrissjóðum. Þriðjungur af lágmarksiðgjaldi í Almenna lífeyrissjóðinn greiðist í séreignarsjóð en algengast er að lágmarksiðgjald greiðist allt í samtryggingarsjóð.
- Almenni er einnig starfsgreinasjóður arkitekta, hljómlistarmanna, leiðsögumanna, lækna og tæknifræðinga.
- Lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð er 12% af launum samkvæmt lögum.
- Lágmarksiðgjald sem greiðist til Almenna skiptist þannig að 8% af launum greiðist í samtryggingarsjóð og 4% í séreignarsjóð.
- Hafi verið samið um hærra lágmarksiðgjald í kjara- eða ráðningarsamning greiðist viðbót í séreignarsjóð nema sjóðfélagar óski eftir sérstaklega eftir öðru.
- Hafi verið samið um hærra lágmarksiðgjald í kjara- eða ráðningarsamning greiðist viðbót í séreignarsjóð nema sjóðfélagar óski eftir sérstaklega eftir öðru.