Getum við aðstoðað?

Endurskoðunarfélag 2015

11. mars 2015

Samkvæmt grein 6.2 í samþykktum sjóðsins skal ársfundur kjósa endurskoðanda eða endurskoðunarfélag til að endurskoða ársreikning lífeyrissjóðsins. Í greininni kemur fram að tillögum um endurskoðunarfélag skuli skila viku fyrir ársfund.

Samkvæmt tillögu endurskoðunarnefndar samþykkti stjórn Almenna lífeyrissjóðsins á fundi þann 25. febrúar sl. að leggja til að Grant Thornton endurskoðun verði endurskoðendur Almenna lífeyris­sjóðsins. Þar sem engin önnur tillaga hefur borist er Grant Thornton sjálfkjörið sem endurskoðunarfélag sjóðsins fyrir reikningsárið 2015.