Getum við aðstoðað?

Makalífeyrir og barnalífeyrir

Makalífeyrir

Makalífeyrir er greiddur úr samtryggingarsjóði við fráfall sjóðfélaga. Makalífeyrir er greiddur eftirlifandi maka sjóðfélaga í a.m.k. 30 mánuði og lengur ef yngsta barn sjóðfélaga er yngra en 20 ára eða ef maki er 50% öryrki og yngri en 67 ára. Samkvæmt lögum telst maki vera sá eða sú sem við andlátið var í hjúskap með sjóðfélaga, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð.

Barnalífeyrir

Barnalífeyrir er greiddur til barna látinna sjóðfélaga ef sjóðfélaginn hafði greitt iðgjöld í að minnsta kosti 24 mánuði af síðustu 36 mánuðum, notið elli- eða örorkulífeyris við andlátið eða öðlast rétt til svokallaðs framreiknings. Barnalífeyrir er greiddur til 20 ára aldurs barns sjóðfélaga og er föst fjárhæð á mánuði sem er verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs. Eigi barn látins sjóðfélaga hvorki foreldri né kjörforeldri á lífi er greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.

Hvað á að gera?

Smelltu á hnappinn til hægri og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum til að fylla út umsókn um maka- og barnalífeyri.

Séreign

Skipting séreignar á milli erfingja

Samkvæmt lögum um starfsemi lífeyrissjóða fellur séreignarsparnaður til erfingja og skiptist á milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Í erfðalögum er maki skilgreindur sem hjúskaparmaki og því erfir sambúðarmaki ekki inneign í séreignarsjóði. Ef hjúskaparmaki og/eða börn eru til staðar við fráfall sjóðfélaga rennur séreignarsparnaður ekki í dánarbú heldur skiptist inneign á milli eftirlifandi maka og barna óháð dánarbússkiptum. Ef hinn látni átti ekki maka og börn eða aðra niðja rennur inneignin í dánarbúið og er skipt á milli erfingja. Lífeyrissparnaður er hjúskapareign og samkvæmt því rennur helmingur séreignar til eftirlifandi maka sem hjúskapareign en því sem eftir stendur er skipt samkvæmt þeim erfðareglum. Athugið að hver og einn erfingi þarf að sækja um útgreiðslu fyrir sig.

Breyting frá lögboðinni skiptingu

Í sumum tilvikum vilja fjárráða börn að eftirlifandi foreldri fái alla inneignina og samkvæmt íslenskum lögum er erfingja almennt heimilt að afsala sér arfi að hluta eða öllu leyti.

Val á ávöxtunarleið fyrir erfingja

Við skipti á séreign er inneign flutt í ávöxtunarleið samkvæmt Ævileið Almenna lífeyrissjóðsins sem byggir á því að inneign sjóðfélaga er ávöxtuð í verðbréfasöfnum sem taka mið af aldri sjóðfélaga. Aldur erfingja stýrir því í hvaða ávöxtunarleið erfðaséreign er flutt við skiptingu. Séreignin flyst síðan á milli safna í samræmi við ákvæði um Ævileiðina. Smelltu á hnappinn til hliðar að skoða hvaða ávöxtunarleiðir eru í boði. Hægt er að velja aðrar ávöxtunarleiðir og rétt er að líta til þeirra ávöxtunarleiða þar sem ávöxtun sveiflast lítið ef taka á inneignina út á næstu árum